Markmið
Markmið stofunnar er að efla rannsóknir á sviði tómstundafræða og skyldra sviða og vera vettvangur þróunar á sviðinu. Rannsóknarstofunni er ætlað það hlutverk að eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna á sviðinu. Megináherslur í rannsóknum eru:
- Tómstundir mismunandi aldurshópa
- Reynslumiðað nám
- Óformlegt nám
- Félagsuppeldisfræði
- Lýðræði
- Félagsmál
- Tómstundamenntun
- Menntun á sviði tómstundafræða og
- Starfþróun fagfólks
Stofan er vettvangur fyrir og tekur þátt í umræðu um tómstundafræði og tekur að sér verkefni sem til hennar er beint. Rannsóknarstofan er vettvangur fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum og taka að sér rannsóknarverkefni sem til stofunnar er beint. Aukin þekking á áhrifum tómstunda hefur opnað augu fólks fyrir mikilvægi þeirra fyrir velferð og þroska einstaklinga.
Tómstundir skipa æ ríkari sess í lífi fólks á öllum aldri og eru mikilvægur hluti af uppeldi og menntun barna og ungmenna.
Rannsóknir sýna jafnframt að á öllum æviskeiðum styður þátttaka í uppbyggilegum og jákvæðum tómstundum við velferð og líðan einstaklinga.
Á vegum rannsóknarstofunnar taka vísindamenn og fagfólk höndum saman um að vinna rannsóknir og sinna brýnum og aðkallandi málefnum í íslensku samfélagi. Að rannsóknarstofunni standa Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg og Félag fagfólks í frítímaþjónustu.
Formaður
Jakob Frímann Þorsteinsson, aðjunkt tómstunda- og félagsmálafræði
Stjórn
Eygló Rúnarsdóttir, aðjunkt tómstunda- og félagsmálafræði
Soffía Pálsdóttir, SFS Reykjavíkurborg / Félag fagfólks í frítímaþjónustu
Ómar Einarsson, ÍTR Reykjavíkurborg
Valur Rafn Halldórsson, Samband íslenskra sveitarfélaga