Aukin þekking er á áhrifum tómstunda hefur opnað augu fólks fyrir mikilvægi þeirra fyrir velferð og þroska einstaklinga.

Tómstundir skipa æ ríkari sess í lífi fólks á öllum aldri og eru mikilvægur hluti af uppeldi og menntun barna og ungmenna.

Rannsóknir sýna jafnframt að á öllum æviskeiðum styður þátttaka í uppbyggilegum og jákvæðum tómstundum við velferð og líðan einstaklinga.

Á vegum rannsóknarstofunnar taka vísindamenn og fagfólk höndum saman um að vinna rannsóknir og sinna brýnum og aðkallandi málefnum í íslensku samfélagi.

Hér, í sérriti Netlu Veftímariti um uppeldi og menntun: Menntakerfi og heimili á tímum COVID-19, má nálgast fræðigreinina Reynsla stjórnenda félagsmiðstöðva og frístundaheimila á tímum samkomubanns vegna COVID-19 vorið 2020, eftir Kolbrúnu Þ. Pálsdóttur, Ársæl Má Arnarsson og Steingerði Kristjánsdóttur. 

Samantekt á niðurstöðum:

Skýrsla vinnustofa vettvangs og námsbrautar-

Erindi á Menntakviku 2024:

Að festa námssamfélag um meistaraprófsverkefni í sessi – Fyrir hverja og af hverju? Eygló Rúnarsdóttir, Oddný Sturludóttir og Jakob F. Þorsteinsson (JOE). Menntakvika – 27. september 2024.

Að stíga inn í hugmyndir um hópleiðsögn - reynsla leiðbeinenda í tómstunda- og félagsmálafræði af þróunarverkefni um námssamfélag. Oddný Sturludóttir, Eygló Rúnarsdóttir og Jakob F. Þorsteinsson (JOE). Menntakvika 27. september 2024.

Ráðstefna kennsluakademíu opinberu háskólanna:

Að njóta góðs af fjölbreyttum auðlindum nemenda og háskólakennara - Námssamfélag um meistaraverkefni í tómstunda- og félagsmálafræði. Oddný Sturludóttir og Eygló Rúnarsdóttir. Ráðstefna kennsluakademíu opinberu háskólanna, 22. nóvember 2024.

 

Orðasafn í tómstundafræði

Orðasafn í tómstundafræði lítur í mars 2019 dagsins ljós í fyrsta skipti á Íslandi. Útgefandi þess er Rannsóknarstofa í tómstundafræði í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Útgáfan er styrkt af Málræktarsjóði. Safnið er afrakstur starfs orðanefndar í tómstundafræði og er jafnframt hluti af Íðorðabankanum sem aðgengilegur er á netinu. 

Hér má nálgast fyrstu útgáfu Orðasafns í tómstundafræði 2019.

Vert er að taka fram að nú er verið að birta fyrstu útgáfu orðasafnsins en orðanefndin mun halda áfram að vinna með það safn hugtaka sem ekki birtast í fyrstu útgáfu orðasafnins. Velkomið er að senda á nefndina hugmyndir að skilgreiningu eða skýringu á hugtökum sem er mikilvægt að setja inn í safnið.   

Forsaga og hlutverk

Orðanefnd í tómstundafræðum var stofnuð í júní 2013 og hefur síðan þá unnið að gerð orðasafns í tómstundafræði. Þeir aðilar sem komu að stofnun nefndarinnar hafa í mörg ár fundið mjög sterkt fyrir því að fagleg og almenn umræða um tómstundir, frístundir, frítíma, æskulýðsmál og skyld svið er ekki nægilega skýr. Fræðasviðið er ungt á Íslandi og því hafa hugtakanotkun og orðræða mótast í starfi á vettvangi á ómarkvissan hátt. Því var talið brýnt að styrkja faglega orðræðu með stofnun orðanefndar og verður það eitt af verkefnum nefndarinnar að gefa út íðorðasafn með íslenskum og erlendum íðorðum með skilgreiningu lykilhugtaka. Það er mat nefndarinnar að slíkt veflægt orðasafn komi að miklu gagni fyrir starf á vettvangi, fagfólk, rannsóknir, nemendur í tómstundafræðum sem og stefnumörkun í æskulýðsmálum.

Orðanefnd í tómstundafræði birti 18. nóvember 2018 fyrstu útgáfu Orðasafns í tómstundafræðum til umsagnar. Farið var svo yfir umsagnir ásamt því að vinna nánar með ýmis hugtök. Orðasafnið var gefið formlega út við hátíðlega athöfn út 8. mars 2019. 

Nefndarmenn

  • Ágústa Þorbergsdóttir, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
  • Eygló Rúnarsdóttir, menntavísindasviði HÍ
  • Hulda Valdís Valdimarsdóttir, Félagi fagfólks í frítímaþjónustu
  • Jakob Frímann Þorsteinsson, menntavísindasviði HÍ
  • Óskað hefur verið eftir skipun æskulýðsráðs á fulltrúa í nefndina
Share