Tómstundadagurinn er árlegur viðburður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði. Markmið með Tómstundadeginum er að vekja athygli á mikilvægi tómstunda og félagsstarfs fyrir samfélög, lífsgæði og þroska einstaklinga, styðja við samtal fagvettvangs og fræðasamfélags og beina sjónum að því sem er efst á baugi hverju sinni.

Tómstundadagurinn var fyrst haldinn árið 2015 að tilstuðlan námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði. Tómstundadagurinn hefur verið haldinn nær óslitið síðan og með ólíku sniði. Nemendur, fagfélög og fagvettvangur hafa alla jafna komið að deginum með einum eða öðrum hætti og þema Tómstundadagsins tengist alla jafna einhverju sem er efst á baugi hverju sinni. Sjónum hefur verið beint að eldri borgurum og tómstundum þeirra, óformlegu námi barna og unglinga í gegnum tómstundaþátttöku og frístundastarf, áskorunum sem fylgja tækni og samfélagsmiðlum, einelti, farsæld og útiveru svo eitthvað sé nefnt.

Að þessu sinni er yfirskrift Tómstundadagsins Mikilvægir aðrir í lífi fólks. Þar er vísað til hlutverks og fagmennsku þeirra sem starfa á vettvangi frítímans að tómstunda- og félagsstarfi með fólki á ólíkum aldri. Sjónum er alla jafna helst beint að börnum, unglingum og ungu fólki en tómstunda- og félagsmálafræðingar starfa m.a. einnig á heilbrigðisstofnunum, við endurhæfingu og við viðburðahald svo eitthvað sé nefnd.

Tómstundadagurinn er í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu og Fagfrí - Landssamtök um fagþróun frístundaheimila

Ráðstefnustjóri er Helgi Grímsson, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu

Erindi og tenglar í upptökur: 

Setning - Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

Youth Voice and Disaster Response - Dr. Dane Stickney University of Colorado, Denver

Tómstundstarf og ungmennastefna stjórnvalda - Guðmundur Ari Sigurjónsson alþingismaður og tómstunda- og félagsmálafræðingur

Hugmyndir og draumar Fagfrí - Gísli Ólafsson formaður Fagfrí

Látum ekki sitja við orðin tóm - um starf orðanefndar í tómstundafræði - Hulda Valdís Valdimarsdóttir verkefnistjóri á frístundaskrifstofu SFS

Að eflast sem tómstunda- og félagsmálafræðingur í starfi með jaðarsettum ungmennum - Melkorka Assa Arnardóttir meistari í tómstunda- og félagsmálafræði

Kynþátta- og menningarfordómar í daglegu lífi ungs fólks - Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt

„Lögbundin leyniþjónusta“ - Frístundaheimilin á Íslandi, opinber sýnileiki og ósýnileiki - Steingerður Kristjándsóttir aðjúnkt

Stafrænt æskulýðsstarf - Benedikta Björg Sörensen Valtýsdóttir aðjúnkt

Hádegishlé

Tengsl og félagslegur stuðningur - Nýnemaferðirnar og þýðing þeirra - Vanda Sigurgeirsdóttir lektor

Fyrirmynd sem gefur öðrum hugrekki - Hekla Björk Hólmarsdóttir aðjúnkt við MVS

Álitamál og stefnumótun í málefnum ungs fólks - Eygló Rúnarsdóttir aðjúnkt

Frelsi og forvarnir - Árni Guðmundsson aðjúnkt

 Óvissa og nýsköpun í Grindavík: Ungmennaþing og þátttökurannsókn með ungu fólki - Jakob F. Þorsteinsson lektor, Elínborg Ingvarsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, Kolbrún Dögg nemi í tómstunda- og félagsmálafræði og Dísa Jakobsdóttir kaospilot

Slit: Samantekt og horft til framtíðar - Kolbrún Pálsdóttir sviðsforseti Menntavísindasvið

 

Ráðstefnan Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2024 - Farsæld barna og ungmenna - Í hjarta æskulýðsstarfs var haldin dagana 25. og 26. janúar á Hilton Reykjavík Nordica hótel.

- Fimmtudaginn 25. janúar var ráðstefnan með key note fyrirlesurum og panel umræðum milli klukkan 13:00 og 16:30. Þema ráðstefnunnar er farsæld, inngilding og Evrópusamstarf.- Föstudaginn 26. janúar voru málstofur um nýjustu rannsóknir, kynning á Evrópuverkefnum og þróunarverkefnum af vettvangi milli klukkan 09:00 og 12:30. 

Nánari upplýsingar um viðburðinn er hér: 

Ráðstefnusíða viðburðarins

Upptaka af ráðstefnunni- dagur 1

Upptaka af ráðstefnunni - dagur 2

Dagskrá:Fimmtudaginn 25. janúar13:00 Setningarræða13:10 Íslenska æskulýðsrannsóknin - Tómstundastarf - Ragný Þóra Guðjohnsen13:40 Outreach Youth Work - Reflections on theory, method and ethics - Bjorn Anderson14:20 Kaffihlé14:50 Inngildandi æskulýðsstarf - Miriam Petra Ómarsdóttir Awad15:10 Ég er komin heim - Vanda Sigurgeirsdóttir15:30 Heita sætið - Panelumræður16:20 Tækifæri og sókn í Evrópu - Óli Örn Atlason og Guðmundur Ari Sigurjónsson16:30 Ráðstefnunni frestað og boðið upp á léttar veitingar

Föstudaginn 26. janúar verða málstofur um nýjustu rannsóknir, kynning á Evrópuverkefnum og þróunarverkefnum af vettvangi. Boðið verður upp á hádegisverð að loknum málstofum.

09:30 - Fyrri málstofur hefjast10:45 - Kaffihlé11:15 - Seinni málstofur hefjast12:30 - Hádegismatur frá VOX

Íslenskar æskulýðsrannsóknir eru skipulagðar af Háskóla Íslands, Landsskrifstofu Erasmus+ á Íslandi, Æskulýðsráði ríkisins, Samfés og Félagi fagfólks í frístundaþjónustu.

Tækifæri og áskoranir í nýju landslagi

Dagsetning:31. mars 2022

Staðsetning:Hitt húsið, Rafstöðvarvegi 7-9, 110 ReykjavíkHluta dagskrárinnar verður streymt

Tími:Kl. 9:00-16:00

Boðið verður upp á kaffiveitingar og hádegismat

Ráðstefnugjald: 4500 kr.Fyrir nema: 3000 kr.Þátttaka í streymi: 1500 kr.

SKRÁNING FER FRAM HÉR

Nánari dagskrá verður auglýst síðar.Takið daginn frá!

Facebookviðburðurinn er hér

Tekið er á móti ágripum til 8 mars á netfanginu gas19@hi.is

Dagskrá rannsóknarstofu í tómstundafræði

09:00 - Ásmundur Einar Daðason - Mennta- og barnamálaráðherra setur ráðstefnuna09:15 - Ráðstefnustjóri tekur við stjórn09:20 - Svava Gunnarsdóttir formaður Æskulýðsráðs kynnir nýja stefnu í tómstunda- og félagsmálum til ársins 203009:35 - Ársæll Már Arnarsson prófessor kynnir nýtt fyrirkomulag æskulýðsrannsókna á Íslandi10:05-10:35 - Af hverju raungerast stefnur ekki? Innleiðing stefnu og framkvæmd breytinga - Halldóra G. Hinriksdóttir MBA, forstöðumaður Seðlavers RB og skáti10:35 - Kaffi hlé11:00 - Panelumræða og spurningar úr sal - Hvað viljum við rannsaka og hvernig nýtist ný stefna í starfi?12:00 Hádegismatur13:00 - Málstofur 1 og 21. Virkni og þátttaka ungs fólks2. Sjálfsefling og uppbygging í tómstundum14:15 - Kaffi hlé14:30 - Málstofur 3 og 43. Fjölbreytileiki í tómstundastarfi4. Tómstundir í gegnum lífið15:45 – Lokaslútt

Málstofa 1 - Virkni og þátttaka ungs fólks

- Efling félagslegrar virkni barna í Breiðholti - Þórdís Lilja Gísladóttir, dósent HÍ

- Virkni og atvinna ungs fólks - Breki Bjarnason, atvinnuráðgjafi í Hinu húsinu

- Bæjarstjórn unga fólksins - Andri Ómarsson verkefnastjóri Hafnarfirði

Málstofa 2 - Sjálfsefling og uppbygging í tómstundum

- Sjálfsefling valáfangi í framhaldsskóla - Áróra Helgadóttir, sjálfsræktarþjálfari og kennari

- Liggur þér eitthvað á hjarta? - Margrét Gauja, forstöðukona í ungmennahúsinu Hamarinn í Hafnarfirði

- Leiðtogaskóli Íslands - Geir Finsson, forseti LUF

Málstofa 3 - Fjölbreytileiki í frístundastarfi

- Hinsegyn – Hinseginvænni Grafarvogur og Kjalarnes - Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir, aðstoðarforstöðumaður Sigynjar

- Áskoranir og ábyrgð í starfi með börnum og ungmennum með flóttamannsbakgrunn - Eyrún Ólöf Sigurðardóttir, aðjúnkt í Háskóla Íslands

- Vinna með hælisleitendum, flóttafólki og fjölbreyttri flóru fólks í félagsmiðstöðvum - Ása Kristín Einarsdóttir, forstöðumaður í félagsmiðstöð

Málstofa 4 - Tómstundir í gegnum lífið

- Félagsmiðstöðvar eldri borgara - Árni Guðmundsson aðjúnkt í Háskóla Íslands

- Ferðamennska og tómstundir - Jakob Frímann Þorsteinsson aðjúnkt í Háskóla Íslands

Íslenskar æskulýðsrannsóknir 2021: Hvert er ferðinni heitið? 

Ráðstefnan var haldin 8. apríl 2021 

Lykilfyrirlesarar voru: 

  • Ársæll Már Arnarsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
  • Sema Erla Serdar, framkvæmdastýra æskulýðsvettvangsins, handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar og meistaranemi í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands
  • Tim Corney, dósent frá Victoria University í Melbourne, Ástralíu

Að ráðstefnunni stóðu: Námsbraut í tómstunda- og félagsmálafræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Rannsóknarstofa í tómstundafræði, Rannsóknarstofa í bernsku og æskulýðsfræðum og Æskulýðsráð.Ráðstefnan var unnin í góðu samstarfi við SAMFÉS, FÍÆT – Félag íþrótta- æskulýðs- og tómstundafulltrúa og FFF – Félag fagfólks í frítímaþjónustu.

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ NÁLGAST UPPTÖKU AF RÁÐSTEFNUNNI

 

 

SMELLIÐ HÉR TIL AÐ NÁLGAST KYNNINGU Á ÞEMAHEFTI FRÍSTUNDAHEIMILA

Kynningin var unnin í samstarfi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Share